Thursday, December 19, 2002

Hvað er málið með konur sem gefa brjóst bara í sófanum í veislum? Maður situr kannski í mestu makindum að reyna að halda uppi vitsmunalegum samræðum þegar konan við hliðina á manni vippar bara út öðru brjóstinu sínu! Jájá ef einhverjar kellingar sem eiga börn lesa þetta þá hugsa þær kannski "þetta er nú bara eðlilegt". Djöfuls bull, karlmenn kannski virðast ekkert kippa sér upp við þetta en allt í einu breytist allt og maður þarf kannski að biðja einhvern að rétta sér eitthvað og sá sem maður biður er innan sjónmáls frá brjóstagjafabeyglunni þá skapar það mikil óþægindi. Ég lít yfir og segi "ertu til í að rétta mér kókflöskuna?" og á meðan hljómar inni í hausnum mínum "ekki horfa á hana EKKI HORFA Á HANA" því ég vill jú ekki vera talinn pervert. Svona virkar allavegana hausinn minn og það skal sko enginn ljúga því að mér að ég sé sá eini....
Svo er ég bara eitthvað veikur heima að vonast til þess að þurfa ekki að vera veikur yfir jólin.
Ó já á meðan ég man, þetta land er á hraðri leið til glötunar ef það er ekki komið fram yfir punkt engra aftursnúninga nú þegar. Ég var í Kringlunni um daginn og slysaðist inn í einhverja skóbúð og leit aðeins í kringum mig, það voru einfaldlega ekki til neinir skór fyrir konur nema svona támjótt helvíti og þessi búð er í Kringlunni og er til sem segir mér það að það kaupir fullt af kvenfólki sér skó þarna. Svo eiga Írafár söluhæstu íslensku hljómplötuna árið 2002.....
dómsdagur hlýtur að vera nærri....

Sunday, December 15, 2002

Helv. comment hnappurinn sást ekki rassgat á hinu templateinu svo ég skipti bara... þetta var það eina sem var ekki í einhverjum æpandi og asnalegum litum eða með einhverjum ávöxtum or sum á svo lifið með því....Nú treð ég líka inn linkum hérna vinstra megin svo þið getið lesið blogg hjá fleiri ölkum og ekkiölkum... við alkarnir munum samt taka yfir heiminn MUHAHAHAAAA...... svefn... ég þarf svoleiðis...

Usss ekkert comment? Hvaða helvítis, og svo þykist maður kunna eitthvað á tölvur... issss

Jæja,
ég var að skella inn commenta kerfi á þetta svo þið getið nú drullað yfir það sem ég segi og ég get þá bætt ykkur á gremjulistana mína. Æ annars veit ég ekkert hvað ég á að segja... Kannski nota tækifærið í orðleysinu og bendi ykkur á hann SatanDýra eða Agla eins og ég kýs að kalla hann en hann er einmitt mjög góður vinur minn og við deilum bróðurlega á milli okkar hatri á támjóum skóm og kvenfólkinu sem gengur í þeim. FM beyglur.

Wednesday, December 11, 2002

Úff mar, aftur roosalegt
Samt mun lélegra crowd í kvöld, eitthvað FM lið á fylleríi að öskra og biðja um óskalög og shit. Cavearinn var orðinn pirraður á þessu í endann og mér fannst hann þó búinn að vera mjög þolinmóður. Snilldar artistar þarna á ferð samt og ég get ekkert meira sagt um það.
The Dirty Three er alveg brilliant hljómsveit, tékkið endilega á henni Hérna og svo getið þið náð í nokkur lög með þeim Hérna.
Annars er ég bara í gúddí fíling að hlusta á alveg brilliant útgáfu af OK Computer þar sem strengjahljómsveit sem heitir The Section spilar alla plötuna á fiðlur og selló býst ég við, getið tékkað á þeim Hér og getið hlustað á nokkur sömpl Hér. Mjög artí fartí fólk greinilega en þetta er alveg brilliant plata sem ég hyggst kaupa mér á næstunni því maður á jú að kaupa allt þetta stuff sem maður vill hlusta á, ég næ mér í tónlist á netinu en ég er alvöru músík fan svo ef það er virði þess að eiga það þá kaupir maður það að sjálfsögðu.

Monday, December 09, 2002

GRUARR!
Hvað er Gruarr spyrjið þið? Gruarr er lýsingarorð yfir stórkostlega allt að því ólýsanlega mikilfenglega tónleika Nick Cave á Broadway.
Ég var að koma heim, allar þessar biðraðir borguðu sig svo sannarlega (þó ég hafi ekki staðið í neinni þeirra sjálfur þá hefði ég gert það anytime) þvílík og önnur eins sniiiilld, hljómsveitin var frábær og fiðluleikarinn er einhver sá mesti snillingur sem ég hef nokkurn tímann séð. Ég kom reyndar ekki á svæðið fyrr en eitthvað um 21:45 því ég þurfti að fara á AA fund. Ekki halda að ég sé einhver mediocre Nick Cave fan, svo er ekki en ég varð að fara á fasta fundinn minn því það snýst um að bjarga lífi mínu og nei það eru sko engir öfgar. Djöfull kom mér samt á óvart hvað það var ótrúlega mikið af nördum þarna, pff eitthvað fm lið með gel í hárinu sem asnaðist til þess að eignast miða og líta á þetta sem einhverja afsökun fyrir fylleríi, leyfið þá frekar alvöru aðdáendum að komast að. Nick Cave er fyrir töffara sem ganga í leðurjökkum og fyrirlíta heiminn ekki eitthvað pakk sem mætir á Nick Cave tónleika til þess að vera með læti og öskra og biðja um óskalög eins og á sveitaballi með Hýrafár eða álíka böndum. Maðurinn var samt ótrúlegur, ég titra.
Eins gott að ég á miða á tónleikana á morgun líka.....

Friday, November 29, 2002

Fann eðal matsölustað í gær,
Serrano í Kringlunni eru með Tortillas og tacos og svona mexikanskt stuff, algjör snilld en hörmuleg staðsetning. Ég fíla ekki þetta Stjörnutorg, lét mig samt hafa það fyrir feita Tortilla.
Annars er frekar lítið um blogg hjá mér þessa dagana þar sem ég ætla að reyna að klára MCSE gráðuna mína fyrir jól.

Tuesday, November 26, 2002

Ég er pimp... Það virðist vera það hlutverk sem mér er ætlað í lífinu. Pimp þarf ekki endilega að vera slæmur hlutur, tímarnir breytast nefnilega og ótrúlegustu hlutir gerast á meðan hann líður.
Einu sinni pimpaði ég dópi og fannst ég svaka kúl gaur á bíl með spoiler kitti og nóg af peningum og dópi en í dag er ég tólfspora pimp. Hvað þýðir það? Það þýðir það að rétt eins og ég trúði statt og stöðugt á það að eiturlyf væru lausnin við öllum mínum vandamálum trúi ég því í dag að tólf spor séu lausnin við þeim og því er ég að pimpa þeim niður á hvern þann sem er tilbúinn til þess að vinna þau.
Ekki halda að þú getir skilið þessi spor með því einu að lesa þau, það er ekki eins og alkóhólistar vakni bara einn morguninn og hugsi "hmmm, ég hugsa að ég fari í meðferð í dag því mér líður eitthvað svo vel", því miður er það ekki svo einfalt.
Við þurfum yfirleitt að ganga í gegn um algjört helvíti, eyðileggja allt í kring um okkur og brenna allar brýr að baki okkar áður en við komumst nálægt því að fá þá hugmynd að kannski mögulega sé eitthvað að hjá okkur. Þegar við erum svo búnir að gefast upp þá kemur einhver tólf spora pimp og les með okkur AA bókina, í þeim tilgangi að hjálpa okkur að skilja hana og vinna sporin.
Það eina sem þessi margrómuðu spor síðan gera er að koma þér í samband við þinn æðri mátt, æðri máttur er bara það og ekkert annað. Hann getur heitið Guð, Búdda,Allah eða hvað sem er, það skiptir engu máli svo lengi sem þú trúir að hann sé þér æðri og geti gert þig heilbrigðan að nýju.

Újee, með miða á seinni tónleika Meistarans Mikla í vasanum. Hversu gott getur það orðið?
Þetta er eingöngu fyrir tilstilli hins mikla öðlings Zeranico

Monday, November 25, 2002

Fín helgi, reddaði mér miðum á aukatónleikana með Nick Cave sem er ekkert nema gott.
Mikil snilld, það birtist grein í Fréttablaðinu á föstudaginn sem er nánast nákvæmlega eins og bloggið mitt á fimmtudagsnóttina (barnaníðingurinn og síbrotamaðurinn).
Það getur þýtt tvennt, annaðhvort er ég efni í blaðamann eða þá að Fréttablaðið er sori. Hvort haldið þið?