Friday, November 22, 2002

FM er merkilegt fyrirbæri, ég er nefnilega að vinna með stelpu sem vill hlusta á FM og ég er ekkert að röfla yfir því þar sem hún vinnur bara með mér fyrir hádegi en þetta gerir það að verkum að ég heyri mikið af þessari vitleysu.
Ding Dong er morgunþátturinn á FM, þeir voru fínir fyrsta eitt, eitt og hálfa árið sitt á Radíó X en misstu það svo alveg og hvað gerist? Jú þeir fara yfir á FM og verða hetjur froðufólksins. Mér finnst líka alveg frábært að heyra ofur hýra lagið þar sem ég held það sé Justin Timberlake sem syngur "Here´s your chance to be a man", mjög karlmannlegt að syngja tónlist sem hefur stelpur 14 ára og yngri sem aðal markhóp.

Þegar maður vinnur fjórða sporið þá skrifar maður meðal annars lista yfir allt og alla sem maður er gramur út í.
FM 95.7 var á gremjulistanum mínum
Ég er ekki lengur gramur út í FM fólkið, ég bara skil það ekki.

Ég ætlaði nú ekki að bitcha yfir svona hlutum hérna en ég bara get ekki sleppt þessu...
Fréttablaðið í dag (fimmtudag). Gaur sem misnotaði 3 litlar stelpur situr inni í 3 mánuði og er á skilorði í 15. Á sömu blaðsíðu er greint frá síbrotamanni sem er dæmdur í árs fangelsi meðal annars fyrir það að stela 5 lambalærum úr Bónus, einhverjum geislaspilara og bílum.
Ekki halda að ég sé að segja það að það eigi eitthvað að taka léttar á síbrotamanninum en stundum finnst mér eins og það séu mjög fáir að taka eftir því að þetta er ekki alveg í samhengi. Við erum annars vegar með mann sem er búinn að stórskaða líf 3 stelpna sem eiga allt lífið framundan og hinsvegar einhvern sem gæti jafnvel hafa stórskaðað Skoda bifreið úr vesturbænum.
Ætli dómsmálaráðherra hugsi oft um þetta á meðan hún lagar hárið inni á multimilljóna baðherberginu sem hún lét útbúa á skrifstofunni sinni?
Tax money anyone?

Thursday, November 21, 2002

Úff... aldrei hélt ég að þessi dagur myndi renna upp, mín eigin bloggsíða.... Allavegana, ég er bara einhver gaur sem getur ímyndað sér að öðru fólki gæti fundist vitleysan í mér skemmtileg.
Ég á miða á Nick Cave tónleikana, það er mjög líklegt að þú eigir ekki slíkt.