Friday, November 29, 2002

Fann eðal matsölustað í gær,
Serrano í Kringlunni eru með Tortillas og tacos og svona mexikanskt stuff, algjör snilld en hörmuleg staðsetning. Ég fíla ekki þetta Stjörnutorg, lét mig samt hafa það fyrir feita Tortilla.
Annars er frekar lítið um blogg hjá mér þessa dagana þar sem ég ætla að reyna að klára MCSE gráðuna mína fyrir jól.

Tuesday, November 26, 2002

Ég er pimp... Það virðist vera það hlutverk sem mér er ætlað í lífinu. Pimp þarf ekki endilega að vera slæmur hlutur, tímarnir breytast nefnilega og ótrúlegustu hlutir gerast á meðan hann líður.
Einu sinni pimpaði ég dópi og fannst ég svaka kúl gaur á bíl með spoiler kitti og nóg af peningum og dópi en í dag er ég tólfspora pimp. Hvað þýðir það? Það þýðir það að rétt eins og ég trúði statt og stöðugt á það að eiturlyf væru lausnin við öllum mínum vandamálum trúi ég því í dag að tólf spor séu lausnin við þeim og því er ég að pimpa þeim niður á hvern þann sem er tilbúinn til þess að vinna þau.
Ekki halda að þú getir skilið þessi spor með því einu að lesa þau, það er ekki eins og alkóhólistar vakni bara einn morguninn og hugsi "hmmm, ég hugsa að ég fari í meðferð í dag því mér líður eitthvað svo vel", því miður er það ekki svo einfalt.
Við þurfum yfirleitt að ganga í gegn um algjört helvíti, eyðileggja allt í kring um okkur og brenna allar brýr að baki okkar áður en við komumst nálægt því að fá þá hugmynd að kannski mögulega sé eitthvað að hjá okkur. Þegar við erum svo búnir að gefast upp þá kemur einhver tólf spora pimp og les með okkur AA bókina, í þeim tilgangi að hjálpa okkur að skilja hana og vinna sporin.
Það eina sem þessi margrómuðu spor síðan gera er að koma þér í samband við þinn æðri mátt, æðri máttur er bara það og ekkert annað. Hann getur heitið Guð, Búdda,Allah eða hvað sem er, það skiptir engu máli svo lengi sem þú trúir að hann sé þér æðri og geti gert þig heilbrigðan að nýju.

Újee, með miða á seinni tónleika Meistarans Mikla í vasanum. Hversu gott getur það orðið?
Þetta er eingöngu fyrir tilstilli hins mikla öðlings Zeranico

Monday, November 25, 2002

Fín helgi, reddaði mér miðum á aukatónleikana með Nick Cave sem er ekkert nema gott.
Mikil snilld, það birtist grein í Fréttablaðinu á föstudaginn sem er nánast nákvæmlega eins og bloggið mitt á fimmtudagsnóttina (barnaníðingurinn og síbrotamaðurinn).
Það getur þýtt tvennt, annaðhvort er ég efni í blaðamann eða þá að Fréttablaðið er sori. Hvort haldið þið?